Ritari hefur stundum fylgst með Charles Kirk, stofnanda Turning Point USA og rökræður hans við háskólastúdenta en Kirk stundar það að fara um Bandaríkin, heimsækja háskóla og rökræða við háskólanemendur.
Stundum varð ritara ekki um sel, er hann sá ofstækið sem sumir stúdentarnir sýndu honum, er þeir urðu rökþrota, og varð hugsað um öryggi hans. En ritari tók eftir að á öllum hans fundum eru vígalega menn á miðjum aldri og hefur ritari þar með gert ráð fyrir að þetta séu lífverðir. Stundum hafa þessi menn þurft að vísa æstasta fólkinu frá hljóðnemanum og hefur það alltaf gengið, þar sem ritari hefur séð til.
Það er sorglegt til þess að vita að síðasta myndbandið sem Kirk gerði, kom frá bíl hans, hann greinilega á leið til þessa háskóla í Utah, þar sem hann lést, var um morð á úkraínskri konu. Þessi kona er flóttamaður frá Úkraínu sem leitaði sér skjóls í Bandaríkjunum en var myrt af brjálaðum manni, þeldökkur, sem sagðist ætla sér að drepa hvíta manneskju. Iryna Zarutska hét hún og var 23 ára. ABC news Þetta sýnir að orðræðan í þjóðfélaginu, um það sé með kerfisbundna kynþáttamiðsmunun; hvíta fólkið með forréttindi; að málflutningur íhaldsmanna eins og Kirk sé hættulegur; að Trump sé djöfullinn sjálfur eða Hitler o.s.frv. endar með skelfingu. Tvisvar var reynt að drepa Trump og núverið var manneskja handtekin, því hún sagist ætla að drepa forsetann.
Þegar vitskert manneskja eða brjáluð hryðjuverkasamtök segjast ætla að drepa annan einstakling eða hóp, þá ber að taka það alvarlega. Því orð er til alls vís.
Vinstri menn vilja takmarka málfrelsið og banna "hatursorðræðu". Það eru mikil mistök, því þá sjáum við ekki hvað "brjálaða fólkið" ætlar sér að gera og er að hugsa. Það er betra að við heyrum í þeim og getum tekið það úr umferð, líkt og með manninn sem var nýverið með hótanir gagnvart Trump, í tíma. Hitt fólkið er hættulegra sem þeigir en framkvæmir. Morðingi Kirks, þagði og því ekki hægt að stoppa hann. Laummorðingjar Trumps þögðu báðir og því ekki hægt að stoppa þá í tíma. Sama á við um önnur dæmi. Ef þaggað er í fólki, framkvæmir það hugsanir sínar í hljóði.
Aðeins að Turning Point USA og stuttri sögu þess (Wikipedia)
Turning Point USA (TPUSA) er bandarísk sjálfseignarstofnun sem berst fyrir íhaldssömum stjórnmálum í framhaldsskólum, háskólum og háskólasvæðum. Hún var stofnuð árið 2012 af Charlie Kirk og Bill Montgomery. Meðal aðildarhópa TPUSA eru Turning Point Endowment, Turning Point Action og TPUSA Faith. TPUSA hefur verið lýst sem ört vaxandi samtökum háskóladeilda í Bandaríkjunum og samkvæmt The Chronicle of Higher Education eru þau ríkjandi afl íhaldsstefnu innan háskólasvæða.
Kirk var aðeins 31 árs gamall er hann var myrtur og á stuttri ævi náði hann lengra en margur annar. Í maí 2012 hélt Charlie Kirk, 18 ára gamall, ræðu á ungmennadegi Benedictine-háskóla. Bill Montgomery, markaðsfrumkvöðull á eftirlaunum og aðgerðasinni Teboðshreyfingarinnar, hvatti Kirk til að fresta háskólanámi og taka þátt í pólitískri aðgerðasinni í fullu starfi. Mánuði síðar, daginn eftir að Kirk útskrifaðist úr menntaskóla, stofnuðu þeir Turning Point USA, sem er hagnaðarskynilaus samtök. Montgomery varð leiðbeinandi Kirks og vann á bak við tjöldin við að sjá um pappírsvinnu fyrir samtökin.
Nú er Kirk var myrtur, var hann að hefja kappræðu fundaröð innan bandarískra háskóla. Yfirleitt fer þetta fram utandyra, fólk er boðið að míkrófón og því gefið tækifæri að tala gegn eða með skoðunum Kirks. Yfirskriftin er: "Proof me wrong". Þetta er mikið hættuspil, því að stúdentar geta verið mjög ofbeldisfullir og hefur þetta einkennt einkum vinstri sinnaða stúdenta síðan á 7. áratugnum, þegar Víetnam stríðið geysaði, hippamenningin kom fram og vinstri sinnuð öfgasamtök herjuðu á vestræn samfélög, á Ítalíu var það Red Brigades, í Grikklandi var það 17. October og í Vestur-Þýskalandi var það Baader-Meinhof sem herjuðu á vestræn gildi og kapitalisma. Búið að eyða þeim flestum um 1990.
Íslenskir stúdentar voru heldur ekki friðsamir, slóust við lögregluna er erlendir leiðtogar komu í heimsókn, hertóku ef ritari man rétt, íslenska sendiráðið í Stokkhólmi o.s.frv. Í dag fara aðgerðasinnar af vinstri vængnum hart gagnvart íslenskum stofnunum, meina aðgöngu fólks að ráðuneytum, sbr. Dómsmálaráðuneytinu og Utanríkisráðuneytinu eða Útlendingastofnun. Og nýjasta nýtt er þegar fundi innan veggja Háskóla Íslands var hleypt upp en fólki líkaði ekki þjóðerni ræðumanns. Ritari hefur gagnrýnt rektor harðlega fyrir aðgerðaleysi og þögn um langt skeið. Það sem gerðist í Háskóla Íslands er aðeins stigsmunur og því sem gerðist fyrir Kirk. Ætlunin var að hefta málfrelsi andstæðingsins. Eigum við að láta slíkt fólk komast upp með þetta?
Málfrelsið liggur undir og dæmin eru að fjölga. Ungur stjórnmálamaður með "rangar skoðanir" var hrópaður niður nýverið og þurfti lögregluvernd. Fjármálaráðherra fyrrverandi sem fær yfir sig "duft" er hann ætlaði að halda ræðu innan H.Í. Hver verður næstur?
Þetta er skrýtið...morðið fagnað innan 10 sekúndur.
Bloggar | 11.9.2025 | 10:31 (breytt kl. 12:25) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bloggfærslur 11. september 2025
Færsluflokkar
- Bílar og akstur
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Fjármál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Löggæsla
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Saga
- Samfélagsmiðlar
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Stjórnlagaþing
- Stjórnmál og samfélag
- Stríð
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Útvarp
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- September 2025
- Ágúst 2025
- Júlí 2025
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
Bloggvinir
Af mbl.is
Innlent
- Kristrún vill endurskoða starfsemi RÚV
- Á annað þúsund manns gætu gist á Seljalandi
- Minnast flugslyss sem varð 1995
- Slys í Árbæjarlaug fer ekki til Hæstaréttar
- Kominn tími til að Ísland standi við skuldbindingar
- Vilja selja Landsbankann og reikna með 350 milljörðum
- Leggja til að matarsendlar fái skammtímastæði
- Hvaða endemis della er þetta?