Sá undarlegi atburður á sér stað í Texas, að þingmenn flýja ríkið til að koma í veg fyrir atkvæðagreiðslu.
Forsagan er þessi: Þingmenn Demókrataflokksins í Texas hafa yfirgefið fylkið í mótmælaskyni gegn umdeildri tillögu þingsins um endurskipulagningu kjördæma sem Donald Trump styður. Þingmennirnir fóru um borð í leiguflugvél á sunnudagskvöld í þeim tilgangi að svipta fulltrúadeild Texas nauðsynlegum fjölda þingmanna til að halda áfram atkvæðagreiðslu um tillögurnar um breytingar á kjördæmum.
Áætlunin um endurskipulagningu kjördæma gæti hugsanlega komið á fót fimm viðbótar þingkjördæmum sem eru í hag Repúblikanaflokksins. Repúblikanar í Texas ráða nú yfir 25 af 38 sætum fylkisins í fulltrúadeild Bandaríkjanna.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þingmenn Demókrata hafa flúið eigið ríki og yfir í annað. En hvers konar lýðræði er þetta? Ef þetta er ólöglegt, er alltaf hægt að leyta til dómsstóla, því þótt Repúblikanar halda í flesta valdaþræði, í alríkisstjórn og á Bandaríkjaþingi, þá er þriðja valdið til staðar og það er dómsvaldið. Svo er það bara staðreynd að fylgi Demókrata hefur aldrei verið eins lítið og þessi misseri eða um 30%. Enginn sjáanlegur leiðtogi er í sjónmáli, engin stjórnarstefna sem fellur kjósendum í geð, aðeins woke stefna og vera á móti öllu sem Repúblikanar koma með, líka þjóðþrifarmál sem Demókratar voru áður fylgjandi.
Sama taktík er reynd í Öldungardeildinni af hálfu Demókrata, reynt er að koma í veg fyrir útnefningar embættismanna fyrir stjórn Trump með því að þrýsta á að fara í sumarfrí og tefja á allan hátt málameðferð.
Hér á Íslandi er ástandið ekki betra, það er farið til útlanda í sumarfrí, þegar tollaálögur eru lagðar á Ísland af hálfu Bandaríkjamann og ESB. Fjarvera er ekki lýðræðisleg vinnubrögð. Þátttaka er það.
Bloggar | 4.8.2025 | 12:36 (breytt kl. 12:38) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 4. ágúst 2025
Færsluflokkar
- Bílar og akstur
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Fjármál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Löggæsla
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Saga
- Samfélagsmiðlar
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Stjórnlagaþing
- Stjórnmál og samfélag
- Stríð
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Útvarp
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Ágúst 2025
- Júlí 2025
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020