Fréttir úr Vesturheimi

Menn fara á taugum yfir þær fréttir sem berast frá Bandaríkjunum. Það er kannski ekki að marka DV eða Eyjuna sem er undir formerkjum þess en þar birtist slúðrið og kannski óttinn frekar en raunveruleikinn.

Þar segir í "blaðagrein" sem ber titilinn "Bandaríkin eru svo nærri því að verða einræðisríki" að "Trump langar mjög að verða einræðisherra." undir mynd af Trump! Alveg galin fullyrðing. Við vitum ekkert hvað er að gerast í kollinum á Trump né hefur stjórn hans aflagt neinar stofnanir (sem hann má reyndar) eða bannað eitthvað sem er gegn stjórnarskránni.

Bandaríkin eru svona nærri því að verða einræðisríki

Bandaríkin eru ennþá lýðræðisríki og ef stjórn Trumps myndi reyna að hrifsa völdin til sín undir lok kjörtímabilsins, þá er að mæta helmingi þjóðarinnar og borgarastyrjöld. Trump og fylgismenn hans hafa verið að gantast með að hann bjóði sig fram þriðja tímabilið en ef hann dreymir það, þarf að breyta lögum.  Fjögur ár er langur tími og Trump gamall maður. Eigum við ekki að sjá hvað gerist áður en eitthvað er fullyrt?  

Trump er að taka mikla áhættu með efnahagssstefnu sína og það á eftir að koma í ljós hvort hún gangi eftir. Menn sem missa allt niður um sig við minnstu golu, fullyrða að heimskreppa sé framundan vegna tollastríð Trumps við umheiminn. Hvernig vita þeir það? Ef rýnt er grannt í stefnu Trumps notar hann tolla sem efnahagsvopn. Aðrir forsetar hafa notað efnahagsþvinganir til að þvinga þjóðir til að láta að vilja sínum. Tollar sem vopn er skárra en þvinganir.

En þetta er ákveðin áhætta sem Trump er að taka. Hann veðjar á að þjóðir heims komi að samningsborðið. Eins og staðan er í dag, virðist þetta ganga eftir en það er hafið viðskiptastríð við Kína. Það var alveg ljóst fyrir öllum, líka Trump liðum að markaðirnir myndu bregðast illa við í byrjun á meðan óvissa er. Óttinn og óvissan um hvort tollar séu að skella á hverfur þegar stjórn Trumps hefur samið upp á ný við allar þjóðir heimssins um viðskipti ríkjanna.

Það sem veldur meiri áhyggjum er hvort Bandaríkin séu að fara í stríð við Íran. Sérfræðingar sem bloggritari hefur séð viðtöl við, eru beggja blands hvort Ísrael og Bandaríkin vinni það stríð. Landhernaður virðist útilokaður og ólíklegt að þeir náði að eyðileggja alla kjarnorkuvopna framleiðslu Íranana. En þeir yrðu að láta kné fylgja kviði og eyðileggja olíuframleiðslugetu þeirra því það er ekki nóg að leggja efnahagsþvinganir á ríkið, þegar það selur 90% af olíu sinni til Kína. En það er smá von um frið ef Íranir fara sömu leið og Líbía undir Gaddafi um að afnema kjarnorkuvopnaframleiðslu sína. Held samt Íranir séu komnir svo langt að ekki verði aftur snúið.

Annað mögulegt stríð er við Kína vegna Taívan.  Menn hafa talað um árið 2027 sem upphafsár. Held að það sé mjög ólíkleg að Kínverjar fari af stað með stríð á þessu ári þegar órói er í kínverska hernum en slúður er um að "valdaránstilraun" hersins hafi átt sér stað og hreinanir í kjölfarið. Sel það ekki dýrara en keypti. En það verða erfiðir tímar framundan fyrir kínverska kommúnstaflokkinn ef efnahagsstríðið heldur lengi áfram.´ Kínverskur almenningur má ekki við efnahagskreppu og þetta getur skapað óróa. Vonandi verður ekki farið í stríð eins og menn gera oft þegar illa gengur í efnahagsmálum, til að fylkja fólkið á bakvið sig. Sagan er með mýmörg dæmi um slíkt, s.s. þegar Argentína ætla að taka Falklandseyjar þegar illa áraði í landinu og farið var í "vinsælt" stríð sem endaði með hörmungum fyrir argentínsku þjóðina.


Bloggfærslur 28. apríl 2025

Höfundur

Birgir Loftsson
Birgir Loftsson

Er áhugamaður um sögu og samfélag Íslendinga í nútíð og þátíð og tengslum Íslands við umheiminn. Móttó: ,,Hafa skal það sem sannara kann að reynast."

Apríl 2025

S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband