Þegar víkingaskip fóru að birtast meðfram ströndum Evrópu á 8. öld vöktu þau bæði undrun og ótta. Norðan menn birtust ekki bara með sverðum, heldur með vörur, tungumál, siði og allt annan lífsstíl. Samfélögin sem þeir hittu kölluðu þá ekki "víkinga" eins og við gerum í dag, heldur gáfu þeim nöfn sem endurspegla hvernig litið var á þá - sem ókunnuga, nágranna, gesti eða gesti sem maður var ekki alveg viss um hvernig ætti að meðhöndla.
Í Englandi voru þeir almennt nefndir Dane Danir hugtak sem notað er um alla þá sem koma að norðan, hvort sem þeir voru í raun danskir eða norskir að uppruna. Á Írlandi gerðu þeir greinarmun á dubgaill og finngaill - dökku og ljósu yfirliti útlendingarnir - kannski til að aðgreina þá eftir uppruna, tungumáli eða stíl, eða einfaldlega út frá því hvernig þeir birtust.
Í þýskumælandi héruðum voru þeir kallaðir askomanner - öskumenn - líklega innblásnir af skipum sínum, sem oft voru smíðuð úr öskuviði. Einföld athugun, en samt með næstum ljóðrænum hljómgrunni. Á múslima hluta Spánar var vísað til þeirra sem al-Majus, orð sem gæti þýtt allt frá heiðingjum til dularfullra utanaðkomandi aðila, sem undirstrikar hversu óþekkt bakgrunnur þeirra og trúarbrögð voru í þessum heimshluta.
Í Býsans var þeim fagnað sem málaliðum. Þar voru þeir kallaðir várangoi (Væringjar) og urðu hluti af lífverði keisarans - hinni ægilegu Varangian-vörður. Margir Skandinavar ferðuðust þangað að eigin vali í leit að auði, ævintýrum og heiður. Í Frakklandi voru þeir þekktir sem Normanni menn frá norðri nafn sem síðar átti eftir að kennast við Normandí og þeir Normannar þar sem afkomendur þessara norðlendinga myndu gegna lykilhlutverki í sögu Evrópu sem bestu riddarar Evrópu. Þeir áttu stóran þátt í töku Landssins helga og fleiri landa.
Bloggar | 29.3.2025 | 23:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra tók þátt í fjölmennum leiðtogafundi Evrópuríkja í Elysée-höll í París í vikunni. Meginefni fundarins var áframhaldandi hernaðarstuðningur við Úkraínu og farið var yfir hvernig tryggja megi sem styrkasta stöðu Úkraínu til framtíðar á þessum viðkvæma tímapunkti í stríðinu við Rússa segir á Útvarpi sögu.
Við þurfum ekki að velkjast í vafa hvar Ísland stendur en Kristrún hefur miklar áhyggjur af vörnum Úkraínu en litlar af vörnum Íslands. Þá áréttaði forsætisráðherra að Ísland hefði nýlega tvöfaldað framlög sín til stuðnings Úkraínu og myndi halda áfram að styrkja varnir landsins, til dæmis í gegnum danska frumkvæðið sem miðar að því að efla úkraínska vopnaframleiðslu og jarðsprengjuleit. Ísland myndi jafnframt leggja sitt af mörkum við áætlanir sem miðuðu að friðargæslu!
Er forsætisráðherra vor orðin alveg gal...? Hvar eru forgangsmálin í varnarmálum? Afskipti af fjarlægu stríði en algjör vanrækla gagnvart því sem nálgast kann að vera íslenskar hervarnir, en það er rekstrur Landhelgisgæslunnar. Eina eftirlitsflugvél hennar kom í mánuðinum úr enn einni landamæra ferðinni (snýkjuferð til Evrópu) frá Miðjarðarhafinu en LHG getur ekki rekið þessa vél nema að láta FRONTEX borga fyrir rekstur hennar. Þessi vél eyðir 11 mánuðum til að verja landamæri Evrópu en á meðan eru Íslandsmiðin eftirlitslaus.
Það er alltaf verið að segja okkur að Íslendingar geti ekki rekið LHG sómasamlega, ekki sé til nægt fjármagn að reka fleiri skip en tvö, það þarf að leigja þyrlurnar, eftirlitsvélin þarf að vera í Miðjarðarhafinu o.s.frv. En á sama tíma rennar milljarðarnir í stríðshítið í Úkraínu. Bein framlag í ár í stríðsrekstur er 2 milljarðar en fleiri fara í efnahagsaðstoð. Sannleikurinn er því að það eru til peningar, þeir fara bara ekki á rétta staði. Sem dæmi kostar um hálfan milljarðar að reka heimavarnir....
Það er frumskylda íslenskra stjórnvalda að tryggja varnir Íslands, ekki Úkraínu. Ef þau vilja styrja varnir Evrópu með þátttöku í þessu stríði, geta þau gert það með að vera ekki veikasti hlekkurinn í vörnum Evrópu.
Ekki er lengur hægt að ganga að tvíhliða varnarsamningnum við Bandaríkjunum vísum, ráðamenn þar eru með stórvelda drauma um PAN AMERICA stórveldi, þar sem Grænland og Kanada falla undir Bandaríkin. Kanada sem 51 ríki Bandaríkjanna skv. Trump en takið eftir að aldrei tala þeir um Grænland sem 52 ríki Bandaríkjanna! Af hverju skyldi það vera? Bandaríkin eru nefnilega ekki bara 50 ríki, heldur hafa þau landsvæði sem þau ráða yfir.
Eins og er, ráða Bandaríkin yfir sextán landsvæði (eða 17), þar af fimm sem tilheyra landafræðilega ekki Bandaríkin - Púertó Ríkó, Gvam, Norður-Maríanaeyjar, Ameríku-Samóa og Bandarísku Jómfrúaeyjar - hafa fasta íbúa sem eru bandarískir ríkisborgarar en lítil sem engin pólitísk réttindi sem hópar.
Ísland er bara steinsnar frá Grænlandi. Hvað ef draumar Kanans um upptöku Grænlands í Bandaríkin ganga ekki eftir? Snúa þeir sér að Íslandi?
Að lokum. Af hverju allur þessi mikli áhugi herlausrar þjóðar á stríði í Evrópu? Tengist þetta áhuga tveggja af þremur stjórnarflokkur á inngöngu í ESB? Á að veðja á stríðsfákinn í Brussel í stað þess í Washington? Frúrnar, formennirnir í stjórnarflokkunum hafa verið kallaðar valkyrjur, en kannski væri nær að líkja þeim við örlaga nornunum í Gísla sögu Súrsonar, sem spáðu honum skelfilegum dauðdaga á vígvelli. Það má því spyrja hvaða örlögum þær eru að boða okkur?
Bloggar | 29.3.2025 | 10:47 (breytt kl. 11:17) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 29. mars 2025
Færsluflokkar
- Bílar og akstur
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Fjármál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Löggæsla
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Saga
- Samfélagsmiðlar
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Stjórnlagaþing
- Stjórnmál og samfélag
- Stríð
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Útvarp
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020