Segja má að árangur Seðlabankans með háum stýrisvöxtum sé lítill. Seðlabankastjóri viðurkennir að verðbólguvæntingar séu háar og lítil trú sé hjá flestum aðilum efnahagslífsins að bönd verði komin á verðbólguna. Dvínandi áhugi erlendra sjóða á íslenskum ríkisbréfum er þrátt fyrir háa vexti og verðbólgan hefur hækkað frekar en lækkað og er nú í 6,3%. Ef húsnæðisliðurinn væri tekinn út, væri hún um 4%.
Fíllinn í postulínsbúðinni er húsnæðismarkaðurinn. Það er hann sem knýr áfram verðbólguna vegna hátt íbúðaverðs (og skuldasöfnun ríkis og sveitarfélaga). Af hverju er hátt íbúðaverð? Jú það er skortur á íbúðum. Það er sveitarfélögum að kenna að útvega ekki nóg af lóðum en hitt er svo að fólk hefur ekki efni á að kaupa sér húsnæðis vegna hátt verðs og vaxtastigs sem er sök Seðlabankans. Skortur = hærra verð = verðbólga. Fyrstu kaupendur þurfa yfir milljón í tekjur til að ráða við afborganir af meðalíbúð.
Seðlabankastjóri segir að vanskil hafi ekki aukist en Brynja Baldursdóttir, forstjóri Motus, segir að þrátt fyrir lítið beri á greiðsluvanda vegna fasteignalána bendi gögn félagsins til þess að alvarleg vanskil séu að aukast töluvert. Hvers vegna ekki meiri vanskil en eru? Bloggritari telur að verðtryggðu lánin taki mesta skellinn af verðbólgunni og það sé verðbólga í hækkun höfuðstóls, þ.e.a.s. verðtryggð lán hækki og hækki, skuldirnar aukist þótt afborganir hækki ekki í sama hlutfalli. Vei þeim sem kusu óverðtryggð lán.
Svo er það hagvöxturinn sem er sáralítill og áætlaður 0,5% fyrir 2024. Ekki bendir það til að blómaskeið sé framundan. Vaxandi atvinnuleysi og há verðbólga, hátt vaxtastig, lágur hagvöxtur og verðbólguvæntingar háar bendir til að hér sé komið skeið stöðnunarverðbólgu.
Seðlabankastjóri segir að það sé aumingjalegt að lækka stýrisvexti um 0,25% og best að sleppa því en gera það svo myndarlega. En er það rétt hjá honum? Hefði ekki verið pólitískt snjallt að senda skilaboð út í samfélagið að hávaxta tímabilið sé á enda? 0,25% lækkun skiptir engu máli hvort sem er, ekki satt?
Bloggar | 22.8.2024 | 12:26 (breytt kl. 12:26) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 22. ágúst 2024
Færsluflokkar
- Bílar og akstur
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Fjármál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Löggæsla
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Saga
- Samfélagsmiðlar
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Stjórnlagaþing
- Stjórnmál og samfélag
- Stríð
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Útvarp
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020