Landfylling í stað Fossvogsbrúar

Fossvogbrúin er talin kosta um 7 miljarða króna. Þetta er miklir peningar fyrir lítinn ávinning. Aðeins á að nota brúnna fyrir hálftóma borgarlínu vagna, gangandi vegfarendur og reiðhjólafólk. Við hin, syndarselirnir, sem erum á bílum getum bara farið áfram fjallabaksleið í miðborg Reykjavíkur.

Mun ódýrara væri að þvera Fossvoginn með landfyllingu. Og byggja nýtt hverfi þar fyrir innan, einnig á landfyllingu. Ef hugsað er í það, þá er miðborg Reykjavíkur, öll strandlengjan frá Seltjarnanesi til Laugarness, byggð á landfyllingu. Ytra í Skerjafirði mætti svo langþráður flugvöllur fyrir höfuðborgarsvæðið upp byggjast, einnig á landfyllingu.

Er aldrei hugsað út fyrir boxið hjá ráðamönnum?

Fossvogsbrú á að verða hluti af Borgarlínunni


Bloggfærslur 10. desember 2023

Höfundur

Birgir Loftsson
Birgir Loftsson

Er áhugamaður um sögu og samfélag Íslendinga í nútíð og þátíð og tengslum Íslands við umheiminn. Móttó: ,,Hafa skal það sem sannara kann að reynast."

Maí 2025

S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband