"Snillingurinn" og forsætisráðherra Kanada, hinn ofur frjálslyndismaðurinn Justin Trudeau, stendur nú frammi fyrir fjöldamorð framin í Kanada. 10 manns stungnir og til bana skv. fréttum og 15 særðir í því sem virðist tveimur árásum. Hann hélt að skyndilausnin að banna byssur myndir leysa allt og engin morð framin eftir það. Allir hamingjusamir í rósrauði ríki framtíðarsamfélagsins. Hann gleymir hins vegar þá staðreynd að byssur drepa ekki, heldur fólkið sem heldur á þeim.
Fólkið sem vill drepa, gerir það með einhverjum hætti. Ef ekki með byssu, þá næsta tiltæka hlut við hendina. Þetta ættu Íslendingar að hafa í huga ef ætlunin er að banna skotvopn. Ástæðan fyrir glæpi er fyrst og fremst félagsleg. Einhver sem er ekki heill á geði, eða lífið leikið grátt, grípur til hins örþrifa verknað að beita ofbeldi.
En annars vilja stjórnvöld helst ekki hafa borgaranna vopnaða, alþýðan gæti nefnilega gripið til vopna þegar stjórnvöld pína og ofsæka almenning af einhverjum ástæðum. En það gæti reynst nauðsynlegt á köflum að almenningur sé vopnaður ef einhver glæpaklíka, lesist öfgaflokkur (nasistar, kommúnistar eða aðrir), reynir að taka völdin í sínar hendur. Stjórnvöld í Bandaríkjunum gætu t.d. aldrei kúgað allan almenning vegna almennrar byssueignar í landinu og stjórnarskrá landsins tekur einmitt á þessu. Viðaukar við stjórnarskrána eru 27 og eru fyrstu tíu þekktir sem Réttindaskrá Bandaríkjanna ,,Bill of Rights og þykja hvað merkastir. Upprunalega stjórnarskráin er 11 blaðsíður að lengd og er hún elsta stjórnarskrá í heiminum sem ennþá er í notkun.
Réttindi almennings
Réttindaskráin er eins og áður sagði, safn tíu greina þar sem tilgreint er um réttindi almennings gagnvart ríkinu en þau eru.
- Fyrsta grein kveður á um að Bandaríkjaþingi sé óheimilt að setja lög sem hindra trúfrelsi, málfrelsi, prentfrelsi eða friðsamleg mótmæli.
- Önnur grein kveður á um rétt almennings til að eiga vopn.
- Þriðja grein verndar almenning frá hermönnum bæði á friðar- og ófriðartímum og að ríkið megi ekki hýsa hermenn á heimilum almennra borgara.
- Fjórða grein verndar borgarana fyrir húsleitum og handtöku, og kveður á um að handtökuskipanir eða húsleitarheimildir skuli gefnar út af dómstól, fyrir skuli liggja rökstuddur grunur um tiltekinn glæp.
Eins og sjá má, er réttur almennings til að bera vopn tryggður i annarri grein og fyrst og fremst til þess að almenningur getur gert uppreisn gegn harðstjórn.
Þriðja greinin lýtur að sama hlut, vernda almenning gegn hernaði stjórnvalda.
Danir gerðu þetta á Íslandi, er dönsk stjórnvöld hertu tökin á Íslandi og Íslendingum með svo kallaða vopnabroti.
Wikipedia: "Vopnadómur Magnúsar prúða, sýslumanns var dómur sem hann lét ganga 12. október 1581 á héraðsþingi í Tungu (í Patreksfirði í núverandi Barðastrandasýslu) um það að allir bændur ættu að vera skyldir til að eiga vopn til að geta varið landið. Í vopnadómi er minnst á að sýslumenn hafi látið safna vopnum og brjóta fimm árum áður, en engar aðrar heimildir finnast um slíkt vopnabrot sem ýmsir hafa dregið í efa að hafi átt sér stað."
Af hverju ætti að draga þessa heimild í efa? Ekki talar Magnús út í loftið og því hlýtur þetta að byggjast á einhverjum veruleika en þetta væri rökrétt framhald af því að Danir vildu herða tökin á landinu. Það gerðu þeir til dæmis eftir siðskiptin, send voru hingað herskip í fimm ár eftir 1550, svo mjög óttuðust þau uppreisn Íslendinga. Almenn vopnaeign virðist einmitt fara minnkandi á þessu tímabili. Vopnaburður á miðöldum tengdist almennt veiku ríkisvaldi, engin almenn lögregla og þvi þurfti almenningur sjálfur að verja sig gegn ofbeldisverkum.
Að lokum. Ég bæti hér við fjórðu greina að gamni en Donald Trump ætlar að nota hana í vörn sinni gegn FBI en greinin segir að bara megi taka hluti sem tengjast rannsókn beint. Húsleitarheimild sé vel skilgreind hvað varðar hvað megi taka en Bandaríkjamenn tóku þetta ákvæði upp vegna þess að Breta gáfu alltaf út opnar húsleitarheimildir er þeir réðu Bandaríkin og brutu gróft á rétti þeirra sem urðu fyrir húsleit.
Bloggar | 5.9.2022 | 11:50 (breytt 7.9.2022 kl. 15:06) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 5. september 2022
Færsluflokkar
- Bílar og akstur
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Fjármál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Löggæsla
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Saga
- Samfélagsmiðlar
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Stjórnlagaþing
- Stjórnmál og samfélag
- Stríð
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Útvarp
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020