Geimskip og aðrir óútskýrðir hlutir

Hér er athyglisverð frétt um að Bandaríkjaþing viðurkennir að fljúgandi furðuhlutir eru ekki allir manngerðir. Hún er reyndar í Pressunni en meginfjölmiðlar tala lítið sem ekkert um UFO eða fljúgandi furðuhluti eins og þeir kallast óformlega á íslensku.

Ég man eftir umfjöllun um Magnús Skarphéðinssyni á sínum tíma en hann þótti hinn mesti furðufugl sem talaði um verndun hvala og hann tryði á geimverur og geimskip.

Á íslensku hafa komið út bækur um þessi fyrirbrigði og sækja má sér á næsta bókasafni.  Erfitt er meta hug íslenskra stjórnvalda um fyrirbrigðið, enda held ég íslensk stjórnvöld hafi aldrei talað formlega um málið. Hver sem ástæðan er, fordómar eða þau vilja ekki tengjast svona "jarðarmálum", er erfitt að segja, ætli megi ekki segja um sé að ræða áhugaleysi, ef ekki skeytingarleysi.

Ég kynntist svo kölluðum geimverufræðum (það er til heil bókaflokkun og samfélag um þessi fræði) í gegnum bókasafnið hér í Hafnarfirði. Ég hafði gaman af og leit á þetta sem bókmenntagrein sem flokkast mætti sem "ævintýrasagna flokkur", sem erfitt er að trúa en gaman að pæla í, líkt og draugasögur/þjóðsögur og líf eftir dauða sögur sem ég hef líka gaman af að lesa. Eitthvað sem erfitt eða ómögulegt er að henda reiður á og því best að hafa allan varan á en hafa gaman af.

En internetið breytti öllu varðandi "geimverufræðin" og nú var hægt að kynna sér þessi fræði, ekki bara af gömlum skruddum á bókasafninu, heldur óteljandi myndböndum og viðtölum við fólk sem þekkir til.

Í Bandaríkjunum, Bretlandi, Frakklandi, Rússlandi og fleiri löndum, hafa þessi fyrirbrigði verið tekin alvarleg í gegnum áratugina og öll stjórnvöld, hafa annað hvort í gegnum sérstakar stofnanir eða gegnum herjum sínum, hafið rannsóknir á fyrirbrigðinu. Project Blue Book er frægasta bandaríska rannsóknarverkefnið um fyrirbrigðið og ælta ég aðeins að skýra það í nokkrum setningum.

Project Blue Book var kóðaheiti fyrir kerfisbundna rannsókn bandaríska flughersins á óþekktum fljúgandi hlutum frá mars 1952 þar til henni lauk 17. desember 1969. Verkefninu, með höfuðstöðvar í Wright-Patterson flugherstöðinni, Ohio, var upphaflega stýrt af kaptein Edward J. Ruppelt  og fylgdi verkefnum af svipuðum toga eins og Project Sign stofnað árið 1947 og Project Grudge árið 1948. Project Blue Book hafði tvö markmið, nefnilega að ákvarða hvort UFO væru ógn við þjóðaröryggi og að vísindalega séð greina UFO-tengd gögn.

Þúsundum UFO skýrslna var safnað, greind og lögð inn. Sem afleiðing af Condon-skýrslunni, sem komst að þeirri niðurstöðu að rannsóknir á UFO væru ólíklegar til að skila meiriháttar vísindauppgötvunum, og endurskoðunar á skýrslu National Academy of Sciences, var Project Blue Book hætt árið 1969.

Flugherinn útvegar eftirfarandi samantekt á rannsóknum þess:

- Enginn UFO sem flugherinn greindi frá, rannsakaði og metur var nokkurn tíma vísbending um ógn við þjóðaröryggi okkar;

- Engar vísbendingar voru lagðar fyrir eða uppgötvað af flughernum um að sjón sem flokkuð var sem „óþekkt“ táknaði tækniþróun eða meginreglur sem eru út fyrir svið nútíma vísindalegrar þekkingar; og

- Það voru engar vísbendingar sem bentu til þess að sýnir sem flokkuð var sem „óþekkt“ væru geimfarartæki.

Þegar Project Blue Book lauk hafði það safnað 12.618 UFO skýrslum og komist að þeirri niðurstöðu að flestar þeirra væru rangar auðkenningar á náttúrufyrirbærum (skýjum, stjörnum o.s.frv.) eða hefðbundnum flugvélum. Samkvæmt landkönnunarskrifstofunni gæti fjöldi skýrslnanna skýrst með flugi fyrrum leynilegra njósnaflugvéla U-2 og A-12.701, skýrslur voru flokkaðar sem óútskýrðar, jafnvel eftir stranga greiningu. UFO skýrslurnar voru settar í geymslu og eru aðgengilegar undir laga um upplýsingafrelsi, en nöfn og aðrar persónuupplýsingar allra vitna hafa verið rýmdar.

Taka skal fram að þessar rannsóknir hófust vegna þrýstings frá almenningi um útskýringu á óþekktum fyrirbrigðum á himninum. Þótt flugherinn hætti að rannsaka þetta opinberlega, hafa bandarísk stjórn rannsakað þetta óformlega allar götur síðan í gegnum "svörtum fjárlögum" og leynistofnunum. Þau voru og eru logandi hrædd við óþekkt tæknifyrirbrigði sem geta farið úr sjó og út í geim á augabragði, geta stungið herþotur auðveldlega af og ekki verið skotin niður. Frá hernaðaröyggi séð, þá er það áhyggjuefni. Eru þetta Rússar eða geimverur? Í hvoru tilfelli fyrir sig, jafn hættulegt fyrir öryggi Bandaríkjanna!

Fyrir nokkrum árum byrjuðu að birtast frásagnir í virtum bandarískum fjölmiðlum um fyrirbrigði og sýnd voru myndbönd frá sjóhernum og flughernum sem sýna eltingarleiki herflugmanna við UFO en rakningatækin í dag eru það gott að hægt er að fylgja UFO eftir. Í stað hunsun og skeytingarleysi, var komin virðurkenning. En af hverju núna? Hvað hefur breyst?

Til eru margar óstaðfestar frásagnir um samskipti Bandaríkjastjórnar við meintar geimverur og forsetar eins og Richard Nixon, Jimmy Carter og Ronald Reagan sögðust trúa á þetta og voru jafnvel vitni sjálfir. Hillary Clinton og eiginmaður voru líka áhugafólk en síðarnefnda fólkið dansaði í kringum grautin með óljósum svörum og borið var við þjóðaröryggi þegar krafist var svara.

Ef við hörfum aðeins frá pólitíkinni og hlustum á rannsakendur/áhugafólk sem hafa fjallað um þetta, þá segir það að sprenging hafi orðið á frásögnum af þessi fyrirbrigði upp úr seinni heimsstyrjöldinni og náði það hámarki með Roswell atvikinu 1947 (frásögnin er á þá leið að þrjár geimveru hafi hrapað í geimskipi sínu í grennd við bæinn Roswell, tvær reyndust látnar en ein lifði af til 1953) og er talið upphaf nútíma UFO frásagnarinnar. Af hverju urðu geimskipin eða sýnirnar svo áberandi á þessum tíma? jú menn vilja tengja þetta við upphaf kjarnorkualdar og vaxandi tæknigetu mannkyns og "geimverurnar" hafi áhyggjur af að mannkynið sprengi upp bláa hnöttinn og því best að fylgjast náið með manninum.

Fyrir áhugasama, þá hef ég skrifað um uppljóstrann Bob Lazar (sem útskýrir gangverk geimskipa) og Project Blue Book hér á blogginu.

Hlekkir:

bandarikjathing-vidurkennir-ad-fljugandi-furduhlutir-seu-ekki-allir-manngerdir/

https://fb.watch/f60KxO7-xl/


Bloggfærslur 24. ágúst 2022

Höfundur

Birgir Loftsson
Birgir Loftsson

Er áhugamaður um sögu og samfélag Íslendinga í nútíð og þátíð og tengslum Íslands við umheiminn. Móttó: ,,Hafa skal það sem sannara kann að reynast."

Maí 2025

S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Nýjustu myndir

  • Ikarus
  • Iceland-Def-Force-logo
  • ratsjár- og loftvarnakerfi Íslands
  • stríð
  • World war

Af mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband