1.Þekktu óvin þinn. Í fyrsta lagi þarf að vera fyrir hendi hugmyndafræðilegur skilningur á pólitískum andstæðingunum til vinstri. Handbók vinstrimanna breytist aldrei og þeir þylja í sífellu sömu frasana um jafnrétti, kúgun og arðrán kapitalista. Þeir skilja ekki gangverk markaðshagkerfið og ráðast í sífellu á kerfið sem sér þeim farborða, setur mat á borðið þeirra og tryggir mannsæmandi laun og kjör. Það er veikleikinn í orðræðu þeirra.
Helsta aðferðafræði þeirra er að þagga niður andóf andstæðinganna. Alls staðar og alltaf. Vinstrimenn hafa engan áhuga á að taka þátt á vettvangi hugmynda. Frjálslyndir fyrirlíta sjálfa hugmyndina um pólitíska andstöðu og eru fljótir að saka andstæðinginn um fasisma.
Það eru tvö góð dæmi um þetta hér á Íslandi, bara núna í vikunni. Dómsmálaráðherra og fjármálaráðherra eru sakaðir um mannfyrirlitinu og að stunda fasisma. Frelsið er vinstrisinna mesti óvinur, þar með talið málfrelsið; stjórn á tali er leiðin að öllum markmiðum þeirra: að safna völdum og þagga niður í andstæðingum.
Þeir reyna að merkja allar andstæðar hugmyndir utan marka, sem jaðarhugmyndir þannig að þeir sem eru gagnrýndir eru útskúfaðir, fyrirlitnir og sniðgengnir.
2. Hafna forsendum vinstri manna. Ásakanir og árásir vinstrimanna eru byggðar á óskilgreindum forsendum: Þú ert vandamálið; hægri menn eru vandamálið; Ísland er vandamálið. Aldrei er rætt um sjálft málefnið, farið er í manninn, ekki boltann. Lærðu að snúa taflinu samstundis og ósjálfrátt. Vinstrimenn kalla andstæðinga sína hættulega. Ótilgreind forsenda var sú að það væri slæmt að vera hættulegur frjálshyggjunni. Þá er bara að segja já, ég er hættulegur hugmyndum ykkar því að mínar hugmyndir eru betri.
3. Notaðu kraftinn þinn. Vinstri liðið á Íslandi kann að virðast ósigrandi, enda flestir fjölmiðlar á bandi þeirra og margir kjósa til vinstri hugsunarlaust. En þeir hafa ekki sannleikanum, gleðina og skynsemina. Þessir eiginleikar eru þeim æðri og vinstrimenn hafa ekkert svar gegn þeim.
4. Ekki að óttast. Vinstrimenn eru hrekkjusvín sem eru hræddir við óttalaust, glaðlegt fólk - sem veit að það hefur rétt fyrir sér. Aldrei, aldrei freistast til að örvænta að staða hægrisins sé vonlaus. Þetta er mest notaða blekkingin hjá vinstrimönnum, sem vill að hægri menn gefist upp fyrirfram án þess að berjast (Hamingjusamir stríðsmenn gefast aldrei upp).
5. Vertu í sókn. Vegna þess að vinstrið hefur engan siðferðilegan grundvöll, er vald vinstrimanna skammvinnt - þegar barist er, mun það hrynja eins og Berlínarmúrinn.
Eina sem vantar, er að stofna hægri sinnaðan og markaðshyggjusinnaðan stjórnmálaflokk. Hann er ekki til á Íslandi í dag. Það þýðir að hægri menn eru sundraðir í dag og eiga engan flokk sem berst fyrir þá. Þeir kjósa því það sem líkist mest hægri flokki og þeir verða alltaf fyrir vonbrigðum þegar ný ríkisstjórn er stofnuð, sem er eins konar samsull tveggja eða þriggja flokka með útþynnta hugmyndaskrá fyrir stjórnarsamstarf.
Á meðan stækkar bálkið eins og sveppur á skít. Skemmst er að minnast orða Thomas Möller sem sagði: Yfirbygging okkar litla lands er orðin allt of stór. Thomas Möller spurði á þingi hvort Íslendingar myndu byrja með því að setja á stofn 180 ríkisstofnanir og 40 ríkisfyrirtæki, 700 ráð og nefndir til að halda kerfinu gangandi ef lýðveldið yrði stofnað í dag. Hvers vegna er þetta svona í dag? Jú, það er enginn markaðssinnaður stjórnmálaflokkur til í dag á Íslandi sem vill minnka umsvif ríkisins.
Ert þú til fyrir ríkið eða á ríkið að vera til fyrir þig?
Bloggar | 18.2.2022 | 11:46 (breytt kl. 20:24) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bloggfærslur 18. febrúar 2022
Færsluflokkar
- Bílar og akstur
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Fjármál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Löggæsla
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Saga
- Samfélagsmiðlar
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Stjórnlagaþing
- Stjórnmál og samfélag
- Stríð
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Útvarp
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- September 2025
- Ágúst 2025
- Júlí 2025
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
Bloggvinir
Af mbl.is
Viðskipti
- Keypti hlutabréf fyrir milljarð dala
- Orkusalan kaupir söluhluta Fallorku
- Icelandair mun fljúga til Feneyja
- Bókfæra þurfi tap upp á 11,4 milljarða
- Aðalmarkaðurinn tryggi gagnsæi
- Vatnið finnur sér leið
- Gervigreindin er ný iðnbylting
- Rafmyntir og fjölskyldustundir
- Vilja auka fjölbreytni á markaðnum
- Mikil uppbygging við Bláa lónið