Vöruskortur í Bandaríkjunum!

Síðan núverandi ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur tekið við (ætla ekki að tala um Joe Biden, því að hann er ekki einn ábyrgður), hefur sigið á ógæfuhliðina í efnahagsmálum helsta kapitalistalands veraldar. 

Stórfelld mistök hafa verið gerð í efnahagsstjórnun, allt í nafni grænnar orkustefnu (New Green Deal)sem er ekki raunhæf, því að orkuskiptin eru rétt að byrja og menn því enn háðir olíu og gasi.

Demókratar hafa stofnað til trilljóna dollara skuldir og vilja bæta við 4 trilljónir í viðbót fyrir desember, ekki í fjárfestingar í innviðum eða stuðningi við atvinnulífið, heldur velferðaprógramma. Joe Biden (varð að minnast á hann) sagði það þessi stjarnfræðilega skuldasöfnun kostaði ekki krónu (dollara)! Jú, því að hinir efnuðu eiga að borga meiri skatta en raunin verður að allir þurfa að borga meira skatta. Gengi dollarans hefur veikst.

Nú er svo komið að verðbólga mælist yfir 5%, atvinnuleysistölur haldast háar, þótt skortur sé á vinnuafli en lægst launuðu kjósa frekar að vera heima á velferðakerfinu og fá meira út úr því en að vinna. Miklar verðhækkanir á vöru og þjónustu eiga sér stað og neysluvísitalan hækkað.

Covid taugaveiklunin er enn ríkjandi, þótt mikilmeiri hluti landsmanna eru bólusettir og þeir opinberu starfsmenn sem neita að bólusetja sig eru reknir úr vinnu. Það vantar því fólk til starfa, svo sem trukkabílstjóra sem aka vörum landshluta á milli.

Milljónir farandmanna streyma yfir suðurlandamærin en þeim er dreift óskipulega um öll Bandaríkin,stundum bara á næstu strætóstoppustöð! Tilheyrandi kostnaður í velferða- og heilbrigðiskerfinu mun fylgja en stór hluti þessa fólks hefur covid og er ekki einu sinni skimað á landamærunum.

Orkuskortur er í landinu og þarf landið að flytja inn rándýra olíu frá Miðausturlöndum en Donald Trump gerði landið  óháð erlendum orkugjöfum í fyrsta sinn í 70 ár er hann var við stjórnvöl.

Mynd að neðan, skip bíða við hafnir á vesturströnd Bandaríkjanna og bíða eftir afgreiðslu.

skip að biða

Nú bætist enn ein vitleysan í pottinn, en aðfluttningur vara, sérstaklega Kína, berast ekki í verslanir og skip sitja við akkeri full af vörum eða hreinlega koma ekki. Verslanir eru með tómar hillur, eitthvað sem hefur ekki sést síðan í kreppunni miklu og á stríðsárunum.

Mynd að neðan. Tómar hillur í verslunum í BNA.

tómar hillur

 

 

 

 

 

Það berast því miður fáar eða engar góðar fréttir úr Vesturheimi.

 

 


Stórhöfðinginn Snorri Sturluson kemur á óvart

Ýmislegt hefur verið skrifað um Snorra Sturluson um tíðina og hann talinn vera merkasti rithöfundur Íslendingar fyrr eða síðar, jafnvel einn sá merkasti á miðöldum yfir höfuð.

Það er óhætt að taka undir það hvað varðar germanska menningu og varðveislu hennar, við gætum aðeins treyst á fornleifarannsóknir til að rannsaka germannska trú eða réttara sagt Ásatrú ef það væri ekki fyrir hann.

Enn kemur karlinn fólki á óvart. Ég horfði á þátt, Um land allt, þar sem Reykholt var tekið fyrir og sérstaklega Reykholt á miðöldum.

Ég hafði skrifað ýmislegt um Reykholt í námi mínu og svo kemur það fyrir í tveimur ritum mínum sem hafa komið út, en það er smáritið Snorri Sturluson og mannlíf á miðöldum en einnig stórvirkið Hernaðarsaga Íslands 1170-1581. Fyrri efnið er ætlað miðstigi grunnskólans en hitt síðara er byggt á námi mínu og rannsóknum sem ég stundaði í Þýskalandi á sínum tíma.

Hvað um það, í hernaðarsögubók minni tók ég fyrir virkisgerð á miðöldum og þar kemur Reykholt sérstaklega við sögu. Ég tíndi til a.m.k. 30 virki eða vígi sem gerð voru á miðöldum en fyrir mér var þetta alls kostar nýjung og vakti undrun minnar þegar ég rannsakaði hernaðarsögu Íslands á þessu tímabili.

Segja má að ég hafi komið fordómalaus að verkefni, því að ég hafði ekki hugmynd hvað ég myndi uppgötva og því engin fyrirfram gefin niðurstaða eða tilgáta gefin mér sem er hreint út sagt frábært.

Þegar ég reyndi fyrst að gefa út bókina Hernaðarsaga Íslands, var mér eftirminnilegt viðbrögð fræðikonu einnar, sem sagði að maður ætti að forðast ýkjur og þar átti hún við um virkisgerð á miðöldum. Mér var hugsað til orða hennar þegar ég heimsótti Reykholt á sínum tima þegar fornleifauppgröftur átti sér stað þar.

Ég tók fornleifafræðingana tali sem voru þarna að verki og einn þeirra benti á uppgrafinn virkisvegg og sagði: Hér stóð virkisveggur Snorra Sturlusonar!  Með öðrum orðum hafði ég tvöfalda sönnun fyrir virkið í Reyholti sem reyndar líkis meira dæmigerðan kastalagarð, bæði úr Sturlungu og forleifauppgreftri. Ég gat trúað mínum eigin augum, enda sannanirnar beint fyrir neðan fætur mínar.

Síðar var fornleifar á Hrafnseyri grafnar upp, eftir að bókin kom út og þær staðfesta orð mín um það virki. Með öðrum orðum, það eru alltaf til svo kallaðir stopparar sem hindra framgang nýrra sýnar eða þekkingar. Það er að sjálfsögðu nauðsynlegr að beita gagnrýna hugsun en annað er að hunsa sönnunargögn og segja allt annað án neins rökstuðnings.

Virkið í Reykholti 2

 

Í Reykholti er sögusýning og þar er þessi tilgátumynd af virkinu hans Snorra Sturlusonar uppi.

Hér fyrir neðan er önnur tilgátumynd af Reykholti en þessi er byggð á fornleifarannsóknum og prýðir kápu bókar um fornleifauppgröftin í Reykholti. Ég hallast frekar að þeirri síðari.

Virkið í Reykholti 1

 

 

Eins og sjá má er þetta svokallað höfuðból í líkingu við kastalagarð. Innan virkisveggja eru 5-6 byggingar og er það merkilegt að eitt húsana var tveggja hæða. Svo mun hafa verið kjallari þarna, undirgöng til laugar o.s.frv.

Þá kemur að því sem ég vissi ekki, en það er að gólfið á a.m.k. einni byggingunni hafi steina eða stokka neðan gólf og bil upp í timburgólf sem var hitað með gufu eða heitu vatni! Með öðrum orðum, var Snorri að nota upphitað gólf eins og er lenska í dag þegar menn innrétta ný hús.  Þvílík snilli.

Hitt kom mér á óvart var að fundist hafði gler glas af vönduðustu gerð, greinilega vínglas eða vínbikar ef menn vilja vera fínir í orðalagi. Sjá myndina að neðan sem ég tók af sjónvarpsskjá. Sagt er að Snorri hafi meira segja flutt inn franskt rauðvín. Ég sel þetta ekki dýrara en ég keypti en finnst þetta trúlegt, þar til annað kemur í ljós! Ég verð að trúa mínum eigin augum og rannsóknir fornleifafræðinga svo einfalt er það.  Við ættum því að athuga vel hvað við segjum þegar við höfnum nýja þekkingu og aldrei að segja aldrei!

Glerglas

 

Mynd að neðan. Rústir kjallarans góða, þar sem Snorri Sturluson var veginn að næturlagi árið 1241.

Kjallari Snorra Sturlusonar

 

 

 

 

 

 

 

 

Að neðan. Hér er önnur mynd af vínbikarnum góða.                                   

Glerglas 2


Bloggfærslur 15. október 2021

Höfundur

Birgir Loftsson
Birgir Loftsson

Er áhugamaður um sögu og samfélag Íslendinga í nútíð og þátíð og tengslum Íslands við umheiminn. Móttó: ,,Hafa skal það sem sannara kann að reynast."

Sept. 2025

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband