Færsluflokkur: Bloggar

Á að leggja niður Stöð 2?

Orðrómur er um að það eigi að leggja niður sjónvarpsstöðina Stöð 2. "Vörumerkið Stöð 2 verður eft­ir því sem ég kemst næst lagt niður í næstu viku, sem og vörumerkið Voda­fo­ne. All­ur pakk­inn verður sam­einaður und­ir merkj­um Sýn­ar. Bylgj­an og FM munu þó halda sín­um merkj­um. Ef af verður, er þetta þá ekki bara svipað dæmi og í Sjón­varpi Sím­ans?," segir í tísti Gísla Freyrs Val­dórs­sonar rit­stjóra hlaðvarps­ins Þjóðmála á Twitter.

Ef þetta er satt, eru þetta stórfréttir. Aðeins tvær sjónvarpsstöðvar (í línulegri dagskrá) starfrækja fréttastofur. RÚV og Stöð 2.  Báðar fréttastofurnar eru vinstri sinnaðar og eiginlega síamstvíburar. Hvorugar verður saknað af stórum hópi fólks. En samt er það slæmt fyrir lýðræðið að aðeins ríkisvaldið reki sjónvarpsstöð á Íslandi.  Við eru komin til ársins 1966 aftur. 

Hvers vegna skyldi ástandið vera svona eins og það er? Jú, ríkisvaldið gefur rangt út spilin og er í raun með einokun á fjölmiðlamarkaðinum. Hver getur keppt við 10 milljarða ríkisapparat á sjónvarpsmarkaðinum og haldið úti fréttastofu? Slík fréttastofa er dýrasti hluti sjónvarpsrekstrar hvers fjölmiðils. Hvenær verður t.d. RÚV tekið alfarið út af auglýsingamarkaðinum? Sem er algjör lágmarkskrafa. Og hvers vegna í ósköpunum eigum við skattgreiðendur að borga fyrir sýn RÚV á íslensku þjóðfélagi? RÚV getur aldrei, og sérstaklega ekki í nútímum, endurspeglað lífssýn allra Íslendinga. Minni á að í mótmælafundi Ísland - þvert á flokka kyrjaði fólk andófsorð gegn RÚV.

Að lokum, þrátt fyrir gífurlega opnun íslenskt samfélags, lifa draugar fortíðarinnar hér og þar í íslensku stjórnkerfi. RÚV er einn af þessum forngripum sem ætti að eiga heima á kvikmyndasafni í sér deild.

 


Samleið Samfylkinginnar og "No border Iceland"

Segja má að Samfylkingarflokkurinn sé flokkur í dulargervi.  Hann segist vera borgaralegur flokkur en hann er í raun sósíalistaflokkur. Hann sveifast til og frá eftir hverjir eru í flokknum hverju sinni, til vinstri og svo enn lengra til vinstri! 

Þess vegna heldur fólk að það geti kosið þennan flokk. Það heldur að það geti kosið flokkinn þegar formaðurinn er mjög nærri miðju en áður, eins og núverandi formaður virðist vera. En formaðurinn er bara haninn í hæsnahópnum sem er ansi stór. Í dag er hæsnahópurinn 16 hæsn ásamt hana. Öll hæsnin raða sig á prikin vinstra megin í hæsnakofanum.

Sem dæmi um hvers konar formennsku kjósendur geta fengið var þegar Logi Einarsson var formaður og var yrst til vinstri og fór með flokkinn í örfylgi og Dag B. Eggertsson fyrrverandi borgarstjóra sem skildi borgina eftir í logandi rúst en er kominn á Alþingi. Kjósendur eru fljótir að gleyma. Einkunnarorð flokksins gætu verið: Boð, bönn og hærri skattar!

Tveir þingmenn Samfylkingarinnar hafa sýnt sitt rétta andlit hvað varðar útlendingamál og landamæri. Þeir eru hins vegar flestir á sömu skoðun og þessir tveir þingmenn.

Ása Berglind Hjálmarsdóttir vill banna þjóðholla Íslendinga að nota íslenska fánann og eys "gífuryrðum" á fólk sem vogar sér að mótmæla friðsamlega samkvæmt stjórnarskráðum rétti.  Hins vegar Víðir Reynisson fyrrverandi lögreglumaður sem finnst allt í lagi að vafrast í störf stofnunnar (sem hann á engan stjórnarfarslegan rétt á að úthlutast í). Þetta kallast á stofnannamáli afskipti löggjafarvalds af framkvæmdarvaldi og myndi flokkast sem afskipti á gráu svæði.

Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur segir að Víðir Reynisson, þingmaður Samfylkingarinnar og formaður allsherjarnefndar, hafi brotið stjórnsýslureglur með afskiptum sínum af máli Oscars. Hann segir að málið sé enn eitt dæmið um að þingmenn kaupi sér vinsældir með lögbrotum.

Þingmenn eru svo miklar tilfinningarverur, að þeim er ekki treystandi til að framfylgja eigin lögum er kemur að framkvæmdarvalds framkvæmd. Þeir búa til undantekningar úr lausu lofti. Það þrátt fyrir að stjórnsýslan (samkvæmt lögum) hefur útskurðar, er haft afskipti af störfum hennar á grundvelli...hvað? Tilfinningar? Hvað með jafnræðisreglunnar og allra hinna sem bíða í röðunni?

Ingibjörg  Davíðsdóttir frá Miðflokknum sagði eftirfarandi: „Það getur ekki talist eðlilegt að einstaklingar sem uppfylla ekki skilyrði til hælis og fá synjun um vernd frá tveimur stjórnsýslustigum geti leitað ásjár Alþingis og fengið vernd þannig, nánast með loforði um veitingu ríkisborgararéttar. Hér hefur verið opnað pandórubox með inngripi formanns allsherjarnefndar og jafnvel er talið að viðkomandi hafi brotið stjórnsýslulög með inngripi sínu. Hér er jafnræðis ekki gætt. Er þetta inngrip með stuðningi hæstvirts forsætisráðherra, formanns Jafnaðarmannaflokks Íslands? Ég tel að þjóðin og aðrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt eigi rétt á svörum við því án undanbragða eða útúrsnúninga?“

Það fer hátt í einn milljarður manna svangur í háttinn á hverjum degi, hefur ekki aðganga að heilbrigðisþjónustu, býr við einræði og býr í kofum án nútíma tækni. Mikið væri óskandi að hægt væri að hjálpa öllum en það er ekki hægt! Það verður því að velja og því miður hafna. Því miður á fjöldi manns á Íslandi ekki til hnífs og skeiðar. Skyldur okkar liggur við það fólk en við vitum að það eru langir biðlistar eftir læknisþjónustu og aðra velferðarþjónustu.

Ráðamönnum landsins ber fyrst og fremst að gæta hagsmuna þess fólks (borgara landsins) sem hefur kosið þá til valda einmitt til að vernda það. Fólkið hefur nefnilega unnið til þess að ráðamenn/þingmenn/ráðherrar gæti vel upp á skattféð sem það hefur lagt í ríkissjóð og sveitarfélög með harðri vinnu.

Fólk vill vernd fyrir afrakstrinn (landamæri til að afmarka hópinn sem fær gæðin) svo að útdeiling gæða =  velferðakerfið, heilbrigðiskerfið, innviðagerð o.s.frv. sé réttlát og hún fari í borgara landsins en ekki einhverja hlaupahópa. Þetta skilja "No border" sinnar ekki og þeirra áhangendur. 


Ísöld framundan? - Stjórnmála- og vísindamenn í tilraunastarfsemi

Halli jarðar er einn þátturinn sem veldur ísöldum, en hann er ekki einn um það. Ísaldir verða fyrst og fremst vegna svokallaðra Milankovitch-hringa, sem eru þríþættar breytingar í sporbraut jarðar (sem er ekki útskýrt hér). En þessir þættir í samspili við kolefnisstyrk í andrúmslofti; hafstrauma; meginlandsfærslu og eldvirkni ráða því hvort jörðin stefnir inn í ísöld eða ekki.

Hvenær kemur næsta ísöld?

Í náttúrulegu samhengi, ef engin áhrif væru af mönnum, þá ætti næsta ísöld að hefjast innan næstu 1.500 til 50.000 ára – líklega innan 10–20.000 ára samkvæmt eldri líkönum. En loftslagsbreytingar af mannavöldum (sérstaklega aukinn CO2 -styrkur) hafa seinkað næstu ísöld verulega.

Vegna mikillar losunar gróðurhúsalofttegunda hefur mannkynið líklega "aflýst" næstu ísöld – að minnsta kosti um 100.000 ár, samkvæmt nýjustu rannsóknum (t.d. sýnt fram á af Ganopolski og félögum, 2016).

En ráðamenn virðast staðráðnir í að næsta ísöld hefjist sem fyrst með því að draga úr CO2 í loftinu! Það er svolítið galið þegar menn reyna að breyta loftslagi án þess að vita niðurstöðuna (það deilt um þetta á fullu en samt tekin ákvörðun sem ekki er aftursnúin!). Væri ekki skynsamlegra að gera ekki neitt á meðan menn eru ekki vissir um niðurstöðuna?

 


Skilningslaus dómsmálaráðherra - Við viljum ekki fordómafullt samfélag

"Við viljum ekki vera fordómafullt samfélag." Þetta segir dómsmálaráðherra og les illa á spilin. Hún heldur að hún geti komið með Solomonsdóm og sagt að við verðum að gæta okkur á jöðrunum í þjóðfélaginu.

„Við viljum ekki fordómafullt samfélag“

En dómsmálaráðherra er í raun aðeins að tala um einn jaðar, og hann er til vinstri hjá aðgerðasinnum No border. Bloggritari efast um að þessi hópur hafi mikið fylgi á bakvið sig. Helst hjá flokkunum Pírötum og VG sem eru báðir komnir af þing. 

Hins vegar segir 61% þjóðarinnar að nóg sé komið í að hafa landamærin opin. Erfitt er að kalla slíkan meirihluta jaðarhóp. 

Dómsmálaráðherra Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir getur verið áhyggjufull en málið er í hennar höndum.  Verk hennar hingað til vekja ekki mikla traust tilfinningu. Byrjað er á að reka eina manninn sem sinn hefur lögum og haldið uppi landamæragæslu. Hún færir einnig vararíkissaksóknara til vegna woke ríkissaksókara. Hún dregur lappirnar með ný útlendingalög sem bloggritara skilst að hafi farið í gegn á dögunum. Nokkuð sem Alþingi hefði átt að láta fylgja með í síðustu lagfæringum á útlendingalögum fyrir hvað tveimur árum? Þarna er sett límband á rifið blað útlendingamála.

Ef einhver er á jaðrinum er það stjórnmálaelítan sem hlustar ekki á borgara landsins sem hafa látið skýrt í ljós viljann sinn.


Fjölmiðill leggur í einelti og staðreyndir um fjöldafund

Það voru þrír ræðumenn á fjöldafundinum 31. maí á Austurvelli en það er bara einn ræðumaður tekinn fyrir, Brynjar Barkarson.  Hann virðist auðvelt skotmark, ungur maður sem lá ýmislegt á hjarta, og því tekinn fyrir. Sjá umfjöllun DV um Brynjar:

Brynjar hafnar því að bera nasistatölu á bakinu – „Kærasta min fekk þessa treyju i afmælisgjöf“

Dæmigerð aðferð fjölmiðla til að taka einstaklinga niður er að kast skít á vegg og sjá hvað situr eftir eins og Kaninn orðar þetta.  Og tengja viðkomandi við slæman málstað, eins og gert var við forsvarsmann Ísland - þvert á flokka, með að láta hann segja í fyrirsögn: "Við erum engir rasistar" og þannig tengja viðkomandi ómeðvitað við slæma málstaðinn.

Sama aðferð var beitt á Brynjar. Manngarmurinn fékk íþróttabol frá kærustu sinni og allt í einu var bolurinn orðinn að nasistabol með nastistatölu. Bolurinn var hins vegar merktur "Bjarnadóttir" eins og sjá má af myndum og Brynjar var þar með greinilega að segja satt. Hvernig er hægt að tengja tölu á íþróttabol við nasistma er ráðgáta.

Tölur um fjölda þátttakenda á fjöldafundinum. Þær eru á reiki en bloggritari tók eftir að lögreglan var með dróna yfir Austurvöll og hefur því auðveldlega getað kastað tölu á fjöldann. Hún segir að hátt í þúsund þátttakendur hafi verið á svæðinu en erfitt er að dæma um það, því Austurvöllur var stútfullur af fólki, margt á kaffihúsum eða á röltinu eða á þessum fjöldafundi.

DV og fleiri fjölmiðlar hafa dregið upp þá mynd að þetta sé bara hálfgerður hópur rugludalla en bloggritari var þarna og eins og segir í annarri grein um fundinn, var þarna hnotskurður af íslensku þjóðinni.

Fólk þorði að mæta, vitandi að ef til vill muni No border Iceland (geta ekki einu sinni skrifað á íslensku eða mótmælt á íslensku) beita ofbeldi.  Sem betur fer kom ekki til þess en reynt var að trufla með sírenuvæli.

Samkvæmt könnun Mbl. birt í dag, er meira en 60% þjóðarinnar komin með nóg af opnum landamærum og vill a.m.k. halla landamærahliðinu. Meira en 60% telja of marga fá hér hæli 

En fyrirstaðan er mikil, innan kerfisins, sbr. brottrekstur lögreglustjórans á Suðurnesjum, woke fréttamenn (útskrifaðir úr woke Háskóla Íslands) og aðgerðarsinnar af vinstri væng sem eru háværir og hafa hrætt ráðamenn til hlýðnis.

Þetta fólk sem mætti á Austurvöll sýndi í verki hugrekki sitt. Það þarf nefnilega átak að fara af stað og skunda niður á Austurvöll. Þetta gæti verið upphafið að viðvarandi mótmælum eins og nú tíðkast víða um Evrópu.  Fólk finnst ráðamenn sem eiga að vera fulltrúar þjóðarinnar, hafi skilið það eftir, ekki sinnt öldruðum, öryrkjum og aðra hópa sem standa höllum fæti, en lagt forgang í móttöku fólks utan úr heimi sem hefur ekkert gert fyrir íslenskt samfélag. Með öðrum orðum, fólk finnst rangt gefið og það skilið eftir á blautri snúru. 


Íslenskir fjölmiðlar fara með rangt mál - DV fremst í flokki

Fréttaflutningur fjölmiðla af fjöldafundinum á Austurvelli laugardaginn 31. maí, er ekki upp á marga fiska. Dæmi: Vísir birtir mynd af forgöngumanni mótmælanna sem sýnir hann með svipgrettu undir fyrirsögninni: "Við erum engir rasistar"! Svo kunna blaðamenn ekki einu sinni að stafa rétt en greinin er morandi af málfræðivillum.

Byrjum á DV sem er sýnna verst. þar er birt grein sem ber titiilinn: "Rýnt í ræðu Brynjars sem hjólaði enn á ný í múslima - Samsæriskenningar, Tyrkjaránið, vistarbandið, sjóræningjar og íslensk menning." Rýnt í ræðu Brynjars sem hjólaði enn á ný í múslima – Samsæriskenningar, Tyrkjaránið, vistarbandið, sjóræningjar og íslensk menning

Að sjálfsögðu er allt illt lagt út af ræðu Brynjars sem talaði blaðalaust og frá hjartanu eins og aðrir ræðumenn gerðu. Farið er ýtarlega í ræðu Brynjars og klikkir ritstjórn DV á að segja: "Eins og áður gerði Brynjar enga tilraun til að færa rök fyrir staðhæfingum sínum og óljóst er hvað á hann við með þess alhæfingum og orðinu "sjóræningjar"."

Bíðum nú aðeins hæg, þetta er ræða á almennum mótmælafundi en ekki vísindaráðstefna stjarneðlisfræðinga með nýjustu vísinda uppgötvun með sönnunarbyrði. Ekki veit bloggritari hvað er átt við með "sjóræningjar" en hvernig væri að spyrja?  

Tökum eina samsæriskenningu Brynjars skv. DV fyrir, fjöldi erlendra glæpamanna í íslenskum fangelsum. Tölur frá fangelsismálastofnun. Samkvæmt nýjustu upplýsingum frá árinu 2024 voru erlendir ríkisborgarar 33% þeirra sem afplánuðu dóm innan og utan fangelsa á Íslandi, sem er hæsta hlutfall sem mælst hefur hér á landi. 

Þessi þróun hefur verið stigvaxandi á síðustu árum:

  • Árið 2021 voru erlendir fangar 17% af heildarfangafjölda.

  • Árið 2022 hækkaði hlutfallið í 21%.

  • Árið 2023 var hlutfallið komið í 28%.

Hver er með þessar heimildir? Sjálft DV! Hlutfall erlendra fanga aldrei verið hærra hér á landi (2024) 

Þetta er geisi hátt hlutfall þegar haft er í huga að útlendingar eru aðeins 80 þúsund af 383K+. íbúum landsins. Þetta segir okkur að misjafn sauður slæðist hingað inn til að fremja afbrot. Reyndar segir þetta okkur að erlendu glæpamennirnir eru ekki fleiri en þetta er sú staðreynd að þeir fljúga hingað til Íslands til að fremja glæpi og fljúga strax á braut. Aðrir taka við og halda áfram. Þess vegna næst ekki nema í hluta þeirra erlendu glæpamanna sem fremja glæpi á Íslandi. Þjófahópa, vændiskvennahópar og fleiri hópar staldra stutt við en fremja glæpi á þessum stutta tíma sem þeir eru hérlendis.  

Og aðeins til að staðreynda kanna tölur sem DV kemur með, þá segir fjölmiðillinn að það séu aðeins 1300 múslimar á Íslandi. Þó að þessi tala gefi vísbendingu um fjölda múslima á Íslandi, þá eru ekki allir múslimar skráðir í formleg trúfélög. Rannsóknir frá öðrum löndum benda til þess að aðeins um 20–25% múslima séu skráðir í slík félög. Ef gert er ráð fyrir svipuðu hlutfalli á Íslandi, gæti raunverulegur fjöldi múslima verið á bilinu 5.000–6.500 einstaklingar.

En ritstjórn DV var greinilega á móti þessum fjöldafundi Íslendinga, það er nokkuð ljóst.  Flestum er ljóst að fjölmiðlar yfirhöfuð, líka íslenskir, eru ekki hlutlausir. Þeir starfa eftir ákveðinni hugmyndafræði, annað hvort eigenda eða ritstjóra. Engin furða að traust almennings til fjölmiðla er lítið. Sem betur fer hefur almenningur valkosti í leit að upplýsingum. Almenningur er almennt fullfær um að ráða við "samsæriskenningar" sem það kemst í tær við, m.a. líka frá fjölmiðli eins og DV sem er með "fréttir" af fljúgandi furðuhlutum (UFO) vikulega!

 


Hnotskurður af íslensku þjóðinni mætti á Austurvöll í dag

Amma og afi, mamma og pabbi, sonur og dóttir, gamalt fólk og ungt fólk og allt þar á  milli mætti á Austurvöll í dag til að mótmæla tómlæti stjórnmálamanna (ekki allra en flestra) í landamæramálum landsins og sem og vanrækslu verndun íslenskrar menningar og tungu. Þetta áttu að vera friðsamleg mótmæli og þau voru það.

Eina fólkið sem vildi efna til ófriðar voru no border krakkarnir sem sagðist ætla að efna til gagnmótmæla en á öðrum stað, Ingólfstorgi. En þar sem enginn hafði áhuga á mótmælum þeirra, var stefnt á Austurvöll til að koma í veg fyrir friðsamleg mótmæli - tjáningarfrelsi sem er varið af íslensku stjórnarskránni. 

Þegar horft var yfir hópinn af no border sinnum, sem talist ekki vera nema 20 manns í mesta lagi, þá voru þetta bara krakkar sem finnst greinilega gaman að vera með læti. Þegar bloggritari fór á heim á leið sá hann suma af þessum krökkum, að bíða eftir strætó til að komast heim til mömmu og pabba.

En hinn hópurinn, hnotskurðurinn af íslensku þjóðinni hélt sín mótmæli áfram þegar no border liðið fékk engan hljómgrunn og skundaði á braut. 

Fólkið sem mætti á Austurvöll, venjulegt fólk sem myndi annars aldrei mótmæla, bara sinna sinni vinnu og einkalíf, kom þarna saman vegna þess að það óttast að íslenska þjóðfélagið sé að fara til fjandast.  Þetta er greinilega grasrótar hreyfing, sköpuð af einstaklingi út í bæ, sem sagði, andsk. ég get ekki lengur setið í sófanum og horft á ástandið verða verra og verra. Ég verð að gera eitthvað og eitthvað gerði hann!

Sökudólgarnir fyrir ástandinu, þingheimur Alþingis, lét ekki sjá sig með þjóðinni í dag. Kannski að hann viti upp á sig skömmina? Eða er þeim alveg sama?  Þetta sem gerðist í dag er ekki einangrað tilfelli, heldur má sjá svona sjálfsprottin mótmæli um alla Vestur-Evrópu.  

Að lokum. Vísir reyndi fyrirfram hvað það gat til að búa til úlfúð á milli hópanna með því að vísa í einhverja vitl...sem hóta ofbeldi á netinu (sem er dæmigert netkjaftæði og enginn tekur mark á) en varð fyrir vonbrigðum með afraksturinn. 

En annað vakti athygli var þegar mótmælendur mótmæltu RÚV og fréttaflutning þess! Held að góðvild Íslendinga gagnvart þessum ríkismiðli sé á enda og fáir sakni hans þegar þjóðin verður ekki nauðbeygð til að greiða skatta í þetta skattahít og hann lagður niður. Held reyndar líka að RÚV sleppi kaflanum þegar mótmælendur mótmæltu RÚV í kvöldfréttum!


Íslensk menning stendur og fellur með fólkinu í landinu

Fyrsta spurningin sem verður að spyrja og þetta er raunveruleg tilvistaspurning: Verður íslensk menning útrýmt vegna fjölgunar innflytjenda?

Hættan er raunveruleg ef ekkert er gert til að styrkja íslenskt samfélag, tungu og menningarvitund. Það er mikilvægt að horfa hvorki með óraunhæfum bjartsýni né með örvæntingu – heldur spyrja: hvað segir reynslan, tölurnar og mannkynssagan? Byrjum á tölfræðinni: Fjöldi og hlutfall erlendra ríkisborgara.

Í maí 2025 er áætlað að rúmlega 80.000 einstaklingar af erlendum uppruna búi á Íslandi – um 21% þjóðarinnar. Hlutfallið hefur hækkað hratt síðasta áratuginn. Þetta er mikil breyting á fáum árum.

Svo eru það menningarleg áhrif "fjölmenningar" (Það er ekkert til sem heitir fjölmenning á Íslandi. Hvaða menningaheima er verið að tala um. Mér sýnist það bara vera ein menning á Íslandi og það er íslensk menning sem er hluti af vestrænni menningu).

Ef innflytjendur aðlagast ekki tungumáli og gildum samfélagsins, þá verður ekki einu sinni fjölmenning heldur menningarbrot – hópar búa hlið við hlið en með ólíkum gildum og engum sameiginlegum grunni.

Í sumum Evrópulöndum (Frakkland, Svíþjóð, Belgía) hefur skortur á aðlögun leitt til átaka, öfgastefna og klofnings. Á Íslandi virðist aðlögun ganga misvel. Vinnumarkaður krefst oft ekki íslensku kunnáttu. Skólakerfið gefur íslensku fyrir útlendinga misgóðan gaum og í raun ræður ekki við ástandið vegna fjöldans. Hver getur farið í gegnum daginn opinberlega (fara út í búð) og ekki tala ensku?

Söguleg viðvörun: Havaí og Grænland

Bloggritari hefur margoft skrifað um örlög Havaí búa sem missti eigin tungu og sjálfstæði þegar íbúum fjölgaði hratt með útlendingum og bandarísk yfirráð tóku við. Í dag tala <1% Havaíbúa móðurmálið og eiga aðeins afskekkta dali sem þeir kalla „heimaland sitt“.

Annað dæmi sem er ekki langt frá okkur er Grænland. Það hefur orðið fyrir lýðfræðilegu og menningarlegu áfalli vegna danskrar yfirráða og innflytjenda. Þeir eru núna að reyna að bjarga því sem bjargað verður.

Þessar sögur sýna að smáþjóðir geta glatast menningarlega, ef þær missa tökin á menningarlegri samloðun og eignarhaldi á landi sínu.

Tungumálið er lykilatriði - íslenskan

Ef nýir íbúar læra ekki íslensku, hverfur tungumálið úr daglegu lífi – og með því fer stór hluti menningarinnar. Þvinguð tvítyngd samfélög leiða oft til þess að veikara málið tapar. Íslenskt samfélag getur ekki haldið menningu sinni nema íslenskan sé virk, lifandi og krafa sé um notkun hennar.

Mun verða borgarastyrjöld?

Þá komum við að verstu sviðsmyndinni - borgarstyrjöld sem þarf ekki að verða, önnur sviðsmynd getur verið að hér búa tveir ólíkir hópar sem deila landsvæði en ekki mikið öðru (dæmi: Bosnía – Hersegóvía sem menn telja reyndar vera vera stutt í að springi loft upp því nú vilja Bosníu Serbar sameinast Serbíu). Annað dæmi, kannski ekki jafn öfgafullt, Belgíu, en þar eru stærstu hóparnir Vallónar (frönsku mælandi) og Flæmingjar (tala hollensku) og þýska í austurhlutanum sem búa saman friðsamlega en aðskilið.

En aftur að verstu sviðsmyndinni. Það er mjög alvarlegt að tala um borgarastyrjöld – en það er ekki ómögulegt ef:

  • Samfélagið brotnar niður í aðskilda hópa sem treysta hvorugir hvor öðrum.
  • Lög og gildi eru ekki samræmd – t.d. ef stórir hópar hafna jafnrétti, tjáningarfrelsi eða réttarríki.
  • Pólitísk forysta heldur ekki uppi skýrum ramma um hver við erum sem þjóð.

Ef þróunin heldur áfram óbreytt er þetta niðurstaðan:

  • Þá er íslensk menning líkleg til að verða jaðarfyrirbæri innan 2–3 kynslóða. Tungumálið gæti orðið „seremóníutunga“ líkt og latína.
  • Íslendingar verða hugsanlega minnihlutahópur í eigin landi um eða eftir miðja 21. öld.

Er þetta þá vonlaust? Hvað þarf að gera til að viðhalda íslenskri menningu?

  • Gera íslensku að skyldu í vinnu og þjónustu – með stuðningi og kröfum.
  • Takmarka innflutning fólks með mjög ólík gildi nema aðlögun sé tryggð.
  • Endurvekja íslenskt þjóðarstolt á uppbyggilegan hátt – ekki með útlendingahatri heldur með menningarviti.
  • Styrkja samfélagslega samstöðu og samkennd – sem byggist á tungumáli og sameiginlegri sögu.

En það er örugglega enginn vilji stjórnmála elítunni til að gera ekkert í málinu. Af hverju þessa svartsýni? Dæmin frá öðru Vestur-Evrópuríkjum sanna það.

Nema okkur sé bara skít sama og viljum ekki verja íslenska menningu og hverfa hljóðlega inn í þjóðahafið? Merkari þjóðir en Íslendingar hafa horfið inn í hyldýpi sögunnar og í sögubækur. Mannkynssagan er full af horfnum (forn)þjóðum.

 


Íhuga að verja 1,5% landsframleiðslu í varnarmál

For­sæt­is­ráðherra seg­ir að stjórn­völd séu að horfa til þess að verja 1,5 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu í „varn­artengd“ út­gjöld, eins og for­ysta NATÓ hef­ur óskað eft­ir af aðild­ar­ríkj­um. Miðað við lands­fram­leiðslu í fyrra næmi upp­hæðin 70 millj­örðum króna á ári.

Íslend­ing­ar verja nú um 0,14 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu í varnarmál.

Íhuga að verja 1,5% landsframleiðslu í varnarmál

Þetta yrði risaskref frá núverandi varnar framlögum en fyrir árið 2025 er varið 6,5 milljarðar í varnartengd málefni og þar af fer 1,5 milljarður í beint framlag í stríðið í Úkraínu. En það kemur ekki fram í fréttum hver féð á að fara.

Bloggritari giskar á að Landhelgisgæslan fái stærsta skerfinn, enda veitir ekki af en hún hefur verið fjársvelt allt frá því að síðasta þorskastríð lauk 1976.  Hún hefur aðeins tvö skip til umráða (þyrftu að vera að lágmarki þrjú) og það vantar sárlega þyrlur, aðra eftirlitsflugvél sem ekki er send í FRONTEX verkefni á Miðjarðarhafi.

Svo væri snjallt að LHG keypti sér eftirlitsdróna en ódýrasta týpan kostar um 200 milljónir ef keypt er frá Ísrael en góð reynsla fékkst af ísraelskum dróna sem var lánaður um árið til gæslunnar.

"Samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2025 fær Landhelgisgæsla Íslands alls 2.882,2 milljónir króna í fjárveitingar. Af þeirri upphæð eru 2.629,2 milljónir króna ætlaðar til almenns rekstrar og 253 milljónir króna til viðhalds skipa og flugfarkosta. Auk þess fær Landhelgissjóður Íslands, sem sér um fjármögnun á kaupum eða leigu á skipum og loftförum fyrir Landhelgisgæsluna, 1.655,8 milljónir króna" Heimildir: Hagstofa Íslands og Stjórnarráðið.

En þetta er aðeins rúmur sex milljarður. Í hvað á hitt að fara? Lúmskur grunur er á að Skessustjórnin ætli sér að fara af fullum þunga inn í ESB og stofna íslenskan her til að vera þar með "fullgildur meðlimur". 

Annars efast ritari um að það sé einhver alvara að þessari hugmynd, líklegra er að hér er daður við Evrópu leiðtoga; skilaboðin er að við ætlum að vera memm! Svo getur verið að menn séu að undirbúa sig undir að Trump beini sjónum sínum að Ísland og vilji ekki fá skammir vegna lítillar þátttöku Íslendinga í eigin vörnum.


Sowell um fall siðmenningar

Hér er hann að tala um Bandaríkin en það sama á við um Ísland...fyrsta íslenska lýðveldið er fallið. Við bara vitum ekki af því.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Birgir Loftsson
Birgir Loftsson

Er áhugamaður um sögu og samfélag Íslendinga í nútíð og þátíð og tengslum Íslands við umheiminn. Móttó: ,,Hafa skal það sem sannara kann að reynast."

Ágúst 2025

S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband